Unnu þrisvar sinnum í lottó

Mæðgur unnu þrisvar í lottó. stækka

Mæðgur unnu þrisvar í lottó. mbl

Mæðgur frá Norður-Karólínu í Bandaríkjunum hafa slegið öll líkindamet þegar þær unnu lottóvinning í þriðja skiptið. Dóttirin vann nú 100.000 dali, móðirin hreppti 161.000 dali árið 2007 og áður hafði hún unnið 15,5 milljónir dala árið 1991.

„Ég hélt að ég myndi aldrei vinna neitt,“ sagði Kimberly McCauley í samtali við fulltrúa lottósins. 

Kimberly sagðist ætla að nota peningana til þess að borga upp námslánin og kaupa sér bíl. 

Sjá frétt á vef BBC. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Göltur ástfanginn af nauti

Úr myndasafni.
í gær Nokkuð sérstakar aðstæður hafa skapast á sveitabæ í suðurhluta Svíþjóðar en þar hefur göltur nokkur tekið ástfóstri við naut á bænum. Að sögn bóndans, Magnus Nyman, varð gölturinn alveg heltekinn af nautinu fyrir um ári og hafi síðan ekki látið það í friði. Meira »

Matseðill af Titanic boðinn upp

21.2. Vonast er til að um 100 þúsund pund fáist fyrir matseðil úr hinni örlagaríku jómfrúferð farþegaskipsins Titanic árið 1912 á uppboði 31. mars næstkomandi hjá uppboðsfyrirtækinu Henry Aldridge & Son. Meira »

Svaf í bíl sem var stolið

Faðirinn hafði skroppið inn í búð að kaupa áfengi.
í fyrradag Sex ára gamall drengur svaf á meðan þjófar tóku bílinn sem hann var í ófrjálsri hendi fyrir utan verslunarmiðstöð í New York. Faðir drengsins hafði skroppið inn í búðina og skilið bílinn eftir í gangi og barnið sofandi. Meira »

Orsök fjárhagsáhyggna fundin

Teikning af heila
21.2. Vísindamenn hafa uppgötvað að tiltekið efni í heilanum hefur þýðingarmikil áhrif á hvort fólk geti einfaldlega lagt sársauka vegna fjárhagslegra áfalla til hliðar eða ekki. Meira »

finnur.is