Pusa í fóninn í sjómannalögum Árna Johnsen

Árni Johnsen stýrir brekkusöng á þjóðhátíð.
Árni Johnsen stýrir brekkusöng á þjóðhátíð.

„Þetta hefur safnast upp á löngum tíma, hér eru bæði gömul og ný lög á ferð, sum eru alkunn hjá þjóðinni en hafa ekki verið til í nýrri útgáfu um áratuga skeið en hafa alltaf lifað hjá landsmönnum og þau set ég í nýjan búining með pusi í,“ segir Árni Johnsen sem nýverið sendi frá sér plötuna Fullfermi af sjómannasöngvum, og eins og titillinn gefur í skyn inniheldur hún sum af vinsælari sjómannalögum Íslendinga. Af 41 lagi eru 30 sem aldrei hafa heyrst áður í nýrri útgáfu Árna en 11 lög hafa komið út við önnur tilefni.

Mikill drifkraftur

„Ég er alltaf að syngja hér og þar og á leiðinni þá safnast í sarpinn og svo hleður maður í það. Ég var kominnn með allt efnið fyrir þetta tveggja diska verkefni og þá var bara að vaða í það að taka upp og gefa út,“ lýsir Árni yfir en hann hefur nú gefið út tíu plötur.

Mikil „spenningur og stuð“ einkennir plötuna að sögn Árna og á hún að vera „hrífandi og leikandi,“ enda var hún tekin upp í „lifandi stíl,“ segir hann. „Menn telja í og byrja svo að spila. Þannig nýtist samspilið og drifkrafurinn í hverjum og einum“.

Þá hlýtur drifkrafurinn að vera ansi mikill því fjöldamargir þjóðkunnugir tónlistarmenn koma fram á plötunni – „landsliðssöngvarar“ eins og segir á plötunni. Til að mynda spila þar Kjartan Valdemarsson píanóleikari, Rúna Georgsdóttir saxófónleikari, Samúel Samúelsson básúnuleikari, Sigurður Alfonsson harmonikkuleikari, og svo syngja Kristján Jóhannsson, Ragnar Bjarnason, Stefanía Svavarsdóttir, Hrönn Svansdóttir, Einar Hallgrímsson og Hallgrímur Þórðarson ásamt félögum úr Karlakórnum Þöstum í Hafnarfirði. „Menn gengu til verka og lögðu allt í það. Það hefur mjög gaman að fá þessa landskunnu söngvara með og þessa frábæru söngvara úr Karlakórnum Þröstum,“ segir Árni.

„Bara rétt að byrja“

Að svo stöddu eru margir á ferð og flugi um sumarið en Árni segir tónleika standa til þegar sumrinu lýkur. Í millitíðinni er þó nóg um að vera því Árni stendur fyrir brekkusöng á Þjóðhátíð í Eyjum eins og mörgun er kunnugt og varla Þjóðhátíð án þess að syngja í brekkunni undir stjórn Árna. „Þetta er í þrítugasta og fimmta sinn... eða eitthvað svoleiðis,“ segir Árni og hlær.

Hann segist spenntur fyrir nýja sviðinu í Eyjum sem verður vígt nú í ár. „Byggingin er á heimsmælikvarða. Þar spila náttúran og tæknin fullkomlega saman,“ segir Árni og segir brekkuna taka eins og faðmur við allri tóngjöf. „Við erum rétt að byrja,“ segir hann aðspurður hvort hann sjá fyrir sér tónleikahald á nýja sviðinu. Annars vinnur hann nú að útsetningar- og tónlistarverkefnum bæði hérlendis og erlendis.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant