Fegursta kona heims
Leila Lopes, 25 ára kona frá Angola, var í nótt kjörin ungfrú heimur en fegurðarsamkeppnin fór fram í Sao Paulo í Brasilíu. Þetta er í fyrsta skipti sem kona frá Angóla hreppir þennan titil.
Lopes sagði eftir sigurinn, að hún hefði þegar unnið að góðgerðarmálum sem ungfrú Angóla. „Ég starfa með fátækum krökkum, ég vinn gegn HIV, ég reyni að aðstoða aldraðra og þjóð mína. Ég tel að sem ungfrú heimur geti ég gert mun meira."
Þegar Lopes svaraði spurningum fréttamanna sagðist hún aldrei hafa gengist undir fegrunaraðgerðir og bestu fegrunarráðin væru að sofa nóg, nota sólarvörn og drekka mikið af vatni. Þá sagði hún að brosið hefði verið besta vopn sitt í keppninni.
Í keppninni sjálfri var Lopes spurð hvaða líkamlegu einkenni hún myndi breyta ef hún gæti svaraði hún: „Ég er afar sátt við hvernig Guð skapaði mig og ég myndi ekki breyta neinu. Ég tel mig hafa fengið innri fegurð í vöggugjöf og fjölskylda mín hefur innrætt mér marga góða siði sem ég ætla að fylgja til æviloka."
Alls kepptu 98 stúlkur um titilinn í Sao Paulo á 60 ára afmæli fegurðarsamkeppninnar. Olesa Stefanko frá Úkraínu varð önnur og Priscila Machado frá Brasilíu þriðja. Íslendingar tóku ekki þátt í keppninni að þessu sinni.









