Veröld/Fólk
| Morgunblaðið
| 15.11.2011
| 5:30
| Uppfært
5:59
Bíóaðsókn helgarinnar: Tinni Spielbergs enn á toppnum
Nýjasta verk leikstjórans Stevens Spielbergs um ævintýri rannsóknarblaðamannsins Tinna og félaga hans Kolbeins kafteins er á toppnum, þriðju vikuna í röð, á lista yfir þær kvikmyndir sem mestar miðasölutekjur hlutust af yfir bíóhelgina.
Í öðru sæti er svo gamanmynd með hasarívafi, Tower Heist, með Ben Stiller og Eddie Murphy í aðalhlutverkum. Á hæla Tower Heist kemur íslenska teiknimyndin Þór en um 22 þúsund manns hafa séð hana.
Næst á lista er nýjasta verk leikarans og leikstjórans George Clooneys, The Ides of March. Gamanmyndin The Inbetweeners Movie, byggð á breskum gamanþáttum, dettur niður um tvö sæti, úr því þriðja í það fimmta. Íslenska kvikmyndin Borgríki er sú áttunda tekjuhæsta en um 15.000 manns hafa séð hana.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Lokadagur leirmunasýningar
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
- Þórunn Erna bæjarlistamaður Garðabæjar
- Rauk út í miðri áheyrnarprufu
- UN Women styrktartónleikar á Gauknum
- „Erum ekkert að fara á taugum“
- Vona að Spánn sigri ekki
- Frost ekki bara á Fróni?
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Aldrei boðið á stefnumót
- Orðljótur í Cannes
- Hróaðu þig niður!









