Rihanna er skítblönk

Rihanna er ekki eins rík og fólk heldur.
Rihanna er ekki eins rík og fólk heldur. SERGIO MORAES

Fjölmiðla grunar að söngkonan Rihanna sé ekki eins rík og fólk heldur. Vefmiðillinn MediaTakeOut.com sagði frá því fyrr á þessu ári að Rihanna væri í alvarlegum fjárhagsvandræðum. Nú virðist sem það eigi við rök að styðjast.

Nú hefur söngkonan sett villu sína á sölu og er svo örvæntingarfull að hún er til í að láta hana á 2,5 milljónum dollara undir kaupverði. Söngkonan keypti húsið fyrir tveimur árum og því ætti það ekki að vera ódýrara í dag en þá.

Rihanna setti villuna á lista yfir húsnæði á skortsölu. Ástæðan er sú að eignin er yfirveðsett og því bara spurning um að kaupandi taki skuldirnar yfir. Bankinn er þó ekki alveg á því þar sem hann óttast að Rihanna muni ekki aflétta veðinu.

Þetta þýðir að annaðhvort á hún enga peninga eða hún er í fjárhagslegri neyð og þar af leiðandi ekki með heimild til að setja villuna á skortsölu. 

Söngkonan auglýsti húsið samt sem áður á skortsölu, og er talið að hún hafi vitað að hún uppfyllti ekki skilyrði til þess að mega gera það og gæti verið tekin fyrir svik. Hún ákvað engu að síður að hætta á það.

Þetta gefur til kynna að hún sé í peningavandræðum. Hún er einn farsælasti listamaður í heimi og ætti því ekki að vera í neinum vandræðum með fjárhaginn. Kannski hirða yfirmenn hennar, eins og Jay-Z, allan gróðann, hver veit?

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant