Segir ekki hvað sem er í símann
Bítillinn Paul McCartney segist vera afar varkár hvað hann lætur út úr sér í síma eftir að sími hans var hleraður.
Hann tali aldrei lengi í síma og skilji aldrei eftir skilaboð í reiði. McCartney hefur samþykkt að ræða við lögreglu í tengslum við rannsókn á símahlerunum einkaspæjara á vegum slúðurblaða í Bretlandi.
Í viðtali við Times segir McCartney að árið 2008 hafi hann farið að gæta sín á því hvað hann segði þar sem blöðin birtu fréttir um ýmislegt honum tengt sem ekki væri á vitorði annarra. Á þessum tíma voru hann og Heather Mills að skilja. Nefnir hann sem dæmi að frétt hafi birst um að hann væri að fara til Bahamas í leyfi og það var eitthvað sem hann hafði ekki nefnt við neinn. Það versta er að þú grunar alla í kringum þig um að leka upplýsingum.
- Fær rúma sex milljarða fyrir Hefnendurna
-
Gabríel á forsíðu Monitor
- Ástin kviknaði á ný
- Chuck Brown látinn
- Menningarnótt í New York
- Köflóttur í Cannes
- Sorkin skrifar og leikstýrir mynd um Jobs
-
Bítlanna leitað í London
- Brettafjör í Bláfjöllum í dag
- Caine læstur á háalofti yfir nótt
- Dregur kæru á hendur Travolta til baka
- Versta martröð Woody Allen










