Matreiddu sinn fyrsta kalkún saman

Angelina Jolie og Brad Pitt. stækka

Angelina Jolie og Brad Pitt. mbl.is/Cover Media

Angelina Jolie og Brad Pitt hafa sjaldan tíma til að standa saman yfir pottunum og elda. Þau gerðu þó undantekningu á því yfir þakkargjörðarhátíðina og matreiddu í sameiningu sinn fyrsta kalkún. Fram til þessa hafa þau auðveldað sér lífið og fengið til sín matreiðslumenn til að sjá um veislumáltíðir en í þetta sinn langaði þau til að spreyta sig sjálf. Þau eru alsæl með útkomuna og mjög stolt af því hvernig til tókst.

Jolie var gestur þáttarstjórnandans Anderson Cooper á CNN og tjáði sig þar um þennan nýja áfanga í lífi þeirra hjóna. Þau hefðu ákveðið að sjá algjörlega sjálf um eldamennskuna og væru stolt af því hvað máltíðin hefði heppnast vel.  Jolie sagðist  síðustu árin nokkrum sinnum hafa reynt að elda sjálf fugl en gaf í skyn að eldamennskan hefði ekki verið upp á marga fiska.

Jolie og Pitt eiga sex ung börn og þrátt fyrir að vera mikið á ferð og flugi reynir fjölskyldan alltaf að setjast niður saman yfir kvöldmatnum. Börnin fylgdust að sögn Jolie spennt með foreldrunum spreyta sig við þakkargjörðarmáltíðina en þau Pitt hefðu staðið upp fyrir haus í eldhúsinu allan daginn og látið eins og þau vissu upp á hár hvað þau væru að gera.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið myndskeið

Flotilla rehearses for British Queen's Jubilee
Í gær, 20:47 Mikil hátíðahöld verða um gjörvallt Bretland næstu helgi, þegar 60 ára krýningarafmæli Elísabetar II Englandsdrottningar, demantsafmælinu, verður fagnað. Meðal atriða á hátíðinni verður sigling báta af ýmsum stærðum og gerðum eftir Thames-ánni. Meira »

Gullpálminn veittur í dag

Michael Haneke ékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag fyrir mynd sína Love.
Í gær, 18:08 Kvikmynd ástralska leikstjórans Michaels Haneke, Love, fékk Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í dag. Í myndinni er sögð saga trygglynds eiginmanns í París sem annast dauðvona eiginkonu sína. Meira »

Danska höllin fékk BAFTA-verðlaun

Sidse Babette Knudsen í hlutverki sínu sem forsætisráðherrann Birgitte Nyborg.
Í gær, 19:34 Dönsku sjónvarpsþættirnir Höllin, eða Borgen eins og þeir heita á frummálinu, fengu bresku BAFTA-verðlaunin í dag sem bestu erlendu sjónvarpsþættirnir. Meira »

Evróvisjón verður í Svíþjóð að ári

Loreen vann Evróvisjón 2012.
Í gær, 14:34 Ljóst er að næsta Evróvisjónkeppni verður haldin í Svíþjóð og er þegar búið að ákveða dagsetningu; laugardaginn 18. maí. Keppnin verður sú 58. í röðinni. Sigurvegarinn, Loreen frá Svíþjóð, var hrærð yfir sigrinum. Meira »

finnur.is