Fullkominn staður fyrir bónorð

Trúlofaður Timberlake. stækka

Trúlofaður Timberlake. MARIO ANZUONI

Justin Timberlake ákvað að Wyoming væri hinn fullkomni staður til að biðja unnustu sinna, Jessica Biel, samkvæmt nýjustu fregnum.

Söngvarinn og leikarinn Justin Timberlake er sagður hafa borið upp bónorðið í fjöllunum við bæinn Jackson þegar turtildúfurnar eyddu þar saman rómantískri aðventu. Parið hefur verið saman með hléum í fjögur og hálft ár svo Justin lagði sérstakan metnað í bónorðið.

„Justin veit hvað hún dýrkar að fara á snjóbretti og vera uppi í fjöllum svo þetta var hinn fullkomni staður,“ sagði heimildamaður í samtali við Us Weekly. „Þegar þau sameinuðust á ný ræddu þau mikið um að taka næsta skref. Justin hefur aldrei verið hamingjusamari með Jessicu svo hann vissi að nú væri rétta augnablikið til að trúlofast.“

Þeir sem nánir eru parinu segja Jessicu himinlifandi með trúlofunina og að hún hlakki til að setjast að með Justin. Eftir að parið hætti saman á síðasti ári hafði hún gefið út að hún myndi einungis gefa sambandinu annan séns ef honum væri virkilega alvara svo nú er bara að vona að allt gangi upp hjá þessu stjörnupari.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
Í gær, 22:30 Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Á sprellanum á bak við skilti

Kiriama fjölskyldan
10.5. Strákarnir í Kiriyama Family sendu frá sér sitt fyrsta lag fyrir rúmu ári en nú er von á þeirra fyrstu plötu. Monitor spjallaði við Bassa Ólafsson trommara um þessa fallegu fjölskyldu. Meira »

finnur.is