Kofi með kjarnorkuflaugabyrgi til sölu

Kjarnorkuflaug í eldflaugarbyrgi. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. stækka

Kjarnorkuflaug í eldflaugarbyrgi. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. mbl.is

Uppboðsfyrirtækið Sotheby's býður nú til sölu fjallakofa í New York-ríki í Bandaríkjunum á jafnvirði rúmlega 216 milljóna króna. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þá staðreynd að undir kofanum er kjarnorkuflaugabyrgi sem fylgir með í kaupunum.

Eignin er í skóglendi í Adirondack-fjöllum í New York-ríki og lítur út eins og hver annar kofi við fyrstu sýn. Ef slegið er inn lykilorð opnast hins vegar dyr og við blasir stigi sem liggur neðanjarðar að eldflaugarbyrginu.

Búið að breyta eldflaugarstjórnstöðinni í lúxusheimili og þaðan liggja löng göng sem varin eru með nokkrum risastórum eldföstum hlerum niður sjö hæðir af tómu byrginu.

Byrgið var tekið í notkun árið 1961 en var lokað fjórum árum síðar. Hýsti það Atlas-F eldflaugar Bandaríkjahers. Kaupsýslumaðurinn Bruce Francisco keypti það síðar.

Hægt er að sjá myndir af eigninni á vef uppboðsfyrirtækisins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is