Orð í belg: „Fabjúlöss“ forseti

Höfundur pistils. stækka

Höfundur pistils.

Í hverju tölublaði Monitor skrifar blaðamaður pistla í liðnum ORÐ Í BELG. Pistlarnir fjalla um allt milli himins og jarðar og eru oftast hugvekjur í léttum dúr.

---

Nú er árið 2012 gengið í garð með tilheyrandi fagnaðarlátum, nýársheitum, að Áramótaskaupinu ógleymdu. Eins og venja er voru helstu ráðamenn landsins nýttir sem grínefni og slapp okkar virðulegi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, svo sannarlega ekki frá þeim flokki. Daginn eftir, á nýársdag, komst forsetinn svo enn í sviðsljósið þegar hann tilkynnti þjóðinni að hann hygðist að öllu óbreyttu ekki gefa kost á sér í komandi forsetakosningum.

Viðbrögðin við yfirlýsingunni létu ekki á sér standa. Samstundis loguðu netheimar með fréttum og vangaveltum um hverjir ætluðu sér að freista þess að verða næsti forseti. Ýmsir verðugir einstaklingar voru þar nefndir til sögunnar en fyrir mitt leyti er borðleggjandi hver ætti að taka slaginn. Ég vil diskódívuna Pál Óskar Hjálmtýsson á Bessastaði.

Hugmyndin er ekki ný af nálinni og er engan veginn frá mér komin. Nú þegar er til rúmlega 3.000 manna hópur á Facebook sem ber einmitt yfirskriftina „Pál Óskar á Bessastaði“. Mætti því segja að þar væru strax komin þau 1.500 meðmæli sem tilvonandi frambjóðandi þarf að afla sér hið minnsta áður en hann býður sig fram. Reyndar er trúlega erfitt að finna betur liðinn einstakling hérlendis en þennan meistara glæstrar sviðsframkomu. 

Hefst hér upptalning ætluð efasemdarmönnum. Í fyrsta lagi er títtnefndur Páll Óskar sérfræðingur í að halda flottar veislur. Það líður vart sá mánuður að maður sjái ekki auglýsta tónleika eða ball sem hann kemur að með einum eða öðrum hætti. Að svo mæltu nefni ég hversu magnað það væri ef erlendum leiðtogum sem heimsækja Ísland væri ekki boðið í uppstíf kokteilboð á Bessastöðum heldur alvörudiskótek þar sem forseti lýðveldisins sjálfur þeytti skífum og tæki lagið. Að minnsta kosti myndi ég gefa margt fyrir að frétta af Hillary Clinton dansandi frá sirka tólf til sjö í teiti hjá Páli Óskari.

Í öðru lagi, hversu vel myndi Páll Óskar njóta sín á sjónvarpsskjáum allra landsmanna í nýársávarpi? Með fullri virðingu fyrir ávörpum Ólafs Ragnars þá myndi það aldeilis lífga upp á forsetaávörpin og reynast skemmtileg tilbreyting að hlýða á Pál Óskar með sínum landsþekktu handarhreyfingum sem gefa orðum hans margfalt vægi. Allt yrði svo miklu meira „bjútífúl“ á Bessastöðum.

Í þriðja lagi, hversu vel myndi Páll Óskar njóta sín í einhverjum „gordjöss“ einkennisbúningi forseta líkt og konungborinn fulltrúi lands og þjóðar?

Síðast en ekki síst hafa Íslendingar löngum verið brautryðjendur þegar kemur að kjöri æðstu embættismanna. Þar dugir að nefna að hér á landi var fyrsti þjóðkjörni kvenforsetinn og nýlegasta dæmið er það þegar Jóhanna Sigurðardóttir settist í stól forsætisráðherra og gerðist þar með fyrsti samkynhneigði þjóðarleiðtoginn svo vitað sé til. Hvort tveggja eru þetta atriði sem Íslendingar geta verið stoltir af enda liðir í því að stuðla að framþróun í hinum ýmsu jafnréttismálum nútímasamfélags. Því væri kjörið að við Íslendingar kórónuðum dæmið með því að kjósa Pál Óskar, þjóðþekktasta homma landsins, í embætti forseta.

Að öllu gamni slepptu er ég sannfærður um að Páll Óskar væri flott sameiningartákn þjóðarinnar enda einlægur og metnaðargjarn maður með eindæmum. Hann kemur svo sannarlega alltaf til dyranna eins og hann er klæddur og hefur sýnt það fyrir löngu að hann hefur fallegan mannúðarboðskap að leiðarljósi í því sem hann gerir. Hann veit einfaldlega hvað hann syngur.


Fabjúlöss forseti?

Fabjúlöss forseti? Eggert Jóhannesson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
Í gær, 22:30 Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Á sprellanum á bak við skilti

Kiriama fjölskyldan
10.5. Strákarnir í Kiriyama Family sendu frá sér sitt fyrsta lag fyrir rúmu ári en nú er von á þeirra fyrstu plötu. Monitor spjallaði við Bassa Ólafsson trommara um þessa fallegu fjölskyldu. Meira »

finnur.is