|
Monitor
| mbl
| 7.1.2012
| 23:30
Bjargaði barni frá fljúgandi sólhlíf
JC Chasez, sem gerði garðinn frægan með N*Sync bjargaði eins árs barni frá fljúgandi sólhlíf á nýársdag.
Móðir barnsins, fylgihlutahönnuðurinn Netali Nissim, hrósaði fyrrverandi N*Sync-söngvaranum í hástert fyrir skjóta hugsun þegar sólhlíf tókst á loft þegar þyrla lenti við Fontainebleau-hótelið í Miami og skaust í átt að litlu stúlkunni.
„Sólhlífin var nokkra sentímetra frá dóttur minni og hann stökk á milli þannig að hlífin skall á öxlinni á honum. Ég get ekki hugsað til þess hvað hefði gerst hefði hann ekki stokkið.“ Er hún poppstjörnunni afar þakklát.
Í samtali við People-tímaritið sagði hún svo frá: „Shirel er óhult, þökk sé honum. Ég sendi honum þakkarkveðjur frá mínum dýpstu hjartarótum. Ef hans hefði ekki notið við hefði dóttir mín slasast.“









