Keith Richards í aðgerð

Keith ætti ekki að þurfa á gleraugum að halda lengur. stækka

Keith ætti ekki að þurfa á gleraugum að halda lengur. PAUL HACKETT

Keith Richards, gítarleikari Rolling Stones, fór í leysigeislaaðgerð á auga til að bjarga síversnandi sjón sinni.

Rokkarinn goðsagnakenndi hefur gengið í gegnum tímana tvenna en hann hefur átt við drykkju- og fíkniefnavandamál auk þess sem hann höfuðkúpubrotnaði árið 2006 þegar hann féll úr tréi á Fiji. Hann lét laga hornhimnu sína til að geta gengið um gleraugnalaus héðan í frá.

Heimildamaður hafði þetta um málið að segja í samtali við dagblaðið Daily Mirror: „Hann er þrautseigasti maður tónlistarbransans en ekki einu sinni Keith Richards barist algjörlega gegn tímans tönn. Aðgerðin var meinlaus, snögglega framkvæmd og hann er afar sæll með útkomuna.“
Sagt er að aðgerðin hafi tekið korter og var hún framkvæmd í London.

Eftir aðgerðina gekk Keith, sem er orðinn 68 ára gamall, um með lepp sem minnti óneitanlega á Captain Teague, persónu hans úr myndunum Pirates of the Caribbean.

Jafnvel þótt Keith Richards hafi tónað sinn háskalega lífstíl niður með því að hætta að neyta harðra fíkniefna fyrir áratug fær hann sér enn í glas endrum. Hann áréttar að hann sé ekki eins og fólk segir að hann sé: „Fólk vill alltaf reyna að draga upp einfalda mynd af mér og segir „Keit er klikkhaus“. Ég get svo sem verið það þegar það á við en þegar ég er heima fyrir geri ég bara eins og mér er sagt. Ég segi bara: „Já elskan, nei elskan,“ eins og hver annar karl.“ Keith er giftur Patti Hansen sem er 55 ára.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
Í gær, 22:30 Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Á sprellanum á bak við skilti

Kiriama fjölskyldan
10.5. Strákarnir í Kiriyama Family sendu frá sér sitt fyrsta lag fyrir rúmu ári en nú er von á þeirra fyrstu plötu. Monitor spjallaði við Bassa Ólafsson trommara um þessa fallegu fjölskyldu. Meira »

finnur.is