Snýr aftur í Glee

Lea Michele er yfir sig spennt fyrir fjórðu seríu Glee. stækka

Lea Michele er yfir sig spennt fyrir fjórðu seríu Glee. mbl.is/Cover Media

Lea Michele er himinlifandi yfir því að snúa aftur í Glee-þættina þetta árið. Leikkonan glæsilega segir jafnframt að höfundur þáttanna sé með frábærar hugmyndir fyrir þáttaröðina.

Í fyrra var greint frá því að Lea, ásamt leikurunum Chris Colfer og Corey Monteith, myndi yfirgefa þættina eftir þriðju seríuna. Þau voru sögð eiga að birtast í systurþáttaröð Glee sem átti að segja á laggirnar. Þau áform hafa þó verið söltuð og er Lea sögð alsæl með að halda áfram að leika hinn metnaðarfulla nemanda Rachel Berry í Glee.

„Það er þá staðfest að Rachel Berry mætir aftur í fjórðu þáttaröð! Þið vitið ekki hvað ég er glöð!“ skrifaði Lea á twittersíðuna sína. „Ryan Murphy er með stórsniðugar og byltingarkenndar hugmyndir sem tengjast því að halda inni okkur útskrifuðu nemendunum í þáttum næstu seríu. Þetta verður frábært!“

Yfirmaður Fox Entertainment, Kevin Reilly, hefur staðfest að það verði ekki búin til systurþáttaröð og að Lea muni leika áfram í Glee. Hann sagði þó að enn væri ýmislegt óvíst með örlög margra leikaranna.

„Frá sköpunarlegu sjónarhorni myndum við vilja halda öllum,“ sagði Reilley við TV Line. „Ég verð að líta til samningsatriða í sambandi við þau öll og það ætlum við að gera.“

Chris Colfer, sem fer með hlutverk Kurts Hummels, hefur einnig staðfest að hann snúi til baka í fjórðu seríu. Hann hafði einnig orð á því að höfundur þáttanna, Ryan Murphy, væri með byltingarkenndar hugmyndir fyrir innkomu hinna útskrifuðu nemenda í þáttinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
Í gær, 22:30 Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Á sprellanum á bak við skilti

Kiriama fjölskyldan
10.5. Strákarnir í Kiriyama Family sendu frá sér sitt fyrsta lag fyrir rúmu ári en nú er von á þeirra fyrstu plötu. Monitor spjallaði við Bassa Ólafsson trommara um þessa fallegu fjölskyldu. Meira »

finnur.is