|
Monitor
| mbl
| 11.1.2012
| 21:15
| Uppfært
12.1.2012
14:16
Besta ofurhetjumynd allra tíma?
Robert Downey Jr. er sannfærður um að þriðja myndin um Iron Man verði ein besta ofurhetju-mynd sem gerð hefur verið. Leikarinn knái mun leika ofurhetjuna Tony Stark í þriðja sinn og er spenntur fyrir því sem koma skal. Áætlað er að myndin, sem Shane Black leikstýrir, komi út á næsta ári.
„Ég vil meina að við eigum möguleika á að gera þriðju myndina um Iron Men þá bestu,“ sagði Robert við kvikmyndasíðuna Omelete. „Þetta verður jafnvel besta ofurhetju-mynd sem gerð hefur verið.“
Þrátt fyrir þennan mikla eldmóð í garð komandi myndar vill Robert minna aðdáendur Iron Man á að gleyma ekki hvers vegna fyrsti kaflinn var svona vel heppnaður. Hann segir að áhorfendur verði að taka þriðju myndinni með opnum hug.
„Við verðum að muna hvað það var sem gerði fyrstu myndina svona góða. Hún var drifin áfram á góðum persónum. Það var frekar skrýtið. Það var nánast svívirðilegt,“ sagði hann. „Þess vegna höfum við hugrekkið til að treysta því að áhorfendur séu svalir og snjallir.“









