|
Monitor
| Cover Media
| 11.1.2012
| 0:12
| Uppfært
1:55
Bieber neitar að syngja um kynlíf
Justin Bieber hefur að eigin sögn ekki í hyggju að byrja að syngja um kynlíf, fíkniefni né nota blótsyrði í bráð.
Stjarnan snyrtilega er ánægð með ímynd sína þótt hún sé meðvituð um að hún eigi trúlega eftir að breytast eitthvað þegar hún eldist. Áhugamál Justins eru smátt og smátt að þróast enda er hann nærri 18 ára og vonast hann til að halda stöðu sinni sem góð fyrirmynd.
„Fólk verður að vita að ég er ekki krakki lengur en mér finnst ég þó ekki alveg fullorðinn ennþá. Ég er enn að læra,“ sagði hann í samtali við V-tímaritið. „Ég ætla ekki að fara að eltast við að gera hluti sem fólk vill sjá mig gera og byrja að lifa einhverju partílíferni með áfengi í hendi. Ég vil fara á mínum eigin hraða. Ég vil ekki byrja að syngja um hluti eins og kynlíf, fíkniefni eða fara að blóta. Ég hef áhuga á ástinni og kannski mun ég fá meiri áhuga á því að njóta ásta þegar ég verð eldri. Ég vil þó vera einhver sem allir virða.“
Sem kunnugt er á Bieber í ástarsambandi við Selenu Gomez og hefur það staðið í u.þ.b. ár.
Ungstirnið segist sátt við árangur sinn en segir að alltaf sé pláss fyrir framfarir.
„Ég vil ná árangri og vera frábær í því sem ég geri. Þegar öllu er á botninn hvolft vil ég verða sá besti í því sem ég stunda,“ segir hann fullur metnaðar. „Mig langar að vera betri en nokkur sem hefur verið í þessum bransa. Til þess verð ég að leggja mikið á mig, vera góður við fólk og koma fram við aðra af virðingu og leggja eins hart að mér og ég get. Í mínu tilfelli tekur þetta svo stóran hluta af lífi mínu að það væri ekki þess virði ef maður væri ekki sá besti.“
Hann talar einnig um óvinsældirnar sem hann mætir og erfiðleikana sem fylgja því að vera í sviðsljósinu.
„Fullt af fólki segist hata Justin Bieber en hefur kannski ekki einu sinni hlustað á tónlistina mína. Þau hata bara hugmyndina Justin Bieber.“









