Engar ungfrúr lengur í bænum

Hverfur mademoiselle úr franskri tungu? stækka

Hverfur mademoiselle úr franskri tungu?

Bær á Bretagne í Frakklandi hefur bannað notkun orðsins „mademoiselle“, sem þýðir ungfrú, og því búa engar „mademoiselles“ í bænum Cesson-Sevigne lengur. Er þetta gert í kjölfar herferðar femínista sem hafa krafist þess að hætt verði að nota orðið fröken um ógiftar konur í Frakklandi. Veltir fréttamaður BBC því fyrir sér hvort orðið muni hverfa úr franskri tungu í kjölfarið.

Hafa bæjaryfirvöld bannað notkun orðsins í öllum skjölum bæjarins og gefa þá skýringu að ekki eigi að skilgreina konur eða karla eftir hjúskaparstöðu viðkomandi.

Því verða konur, óháð aldri og hjúskaparstöðu, titlaðar „madame“, líkt og allir karlmenn bera titilinn „monsieur“, þegar þær vaxa úr grasi.

Þjóðverjar sögðu skilið við ávarpið „fräulein“ árið 1972. Í enskumælandi löndum er „Miss“ óðum að hverfa og „Ms“ hefur tekið við af „Miss“ og „Mrs“.

En staðan er önnur í Frakklandi, líkt og á Spáni, þar sem notað er „senorita“, og Ítalíu, með „signorina“.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is