Flýði úr fangelsi á nærbuxunum

Frá miðborg Hiroshima. stækka

Frá miðborg Hiroshima.

Lögreglan í Hiroshima í Japan gerir nú dauðaleit að fanga sem sat af sér 23 ára dóm fyrir morðtilraun. Honum tókst að sleppa úr fangelsinu í gær, á nærbuxunum einum fata. Þetta er fyrsti fanginn til að strjúka úr japönsku fangelsi í yfir 20 ár.

Að sögn yfirvalda var fanginn, Li Guolin, að stunda líkamsrækt í fangelsisgarðinum þegar hann reif sig skyndilega úr fangabúningnum og notaði vinnupalla sem viðgerðarmenn höfðu reist til að klifra yfir 5 metra háa girðingu umhverfis garðinn. Fangavörður sem varð vitni að flóttanum sagði að Lig hefði „dottið á rassinn og svo snúið sér við og hlaupið burt á miklum hraða".

Flóttatilraunir fanga eru afar fátíðar í Japan og hefur það ekki gerst síðan 1990 þegar unglingur flúði af upptökuheimili. Li er nú eftirlýstur í Japan.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is