Kanill #8 á Faktorý á föstudag

Tim Green þeytir skífum á Kanilkvöldinu annað kvöld. stækka

Tim Green þeytir skífum á Kanilkvöldinu annað kvöld.

Tim Green, einn vinsælasti plötusnúður Bretlands, þeytir skífum á Faktorý föstudagskvöldið 13. janúar næstkomandi.

„Þetta er eitt af stóru nöfnunum úti í Evrópu í danstónlist,“ segir Steindór Grétar Jónsson, einn af meðlimum Kanil um Tim Green. Áttunda Kanilkvöldið fer fram á Faktorý um helgina og mun Tim Green stíga þar á stokk meðal annarra. „Hann er þekktur fyrir að halda sig ekki við einhvern einn stíl af danstónlist heldur verður þetta fjölbreytt og opið og allir munu finna eitthvað við sitt hæfi. Hann er einnig mikill aðdáandi Íslands og setur til dæmis Björk á lista yfir helstu áhrifavalda sína.“

Kanilkvöld hefur verið mánaðarlegur viðburður til þessa sem plötusnúðateymið Kanill stendur fyrir. „Í grunninn var Kanill upphaflega vinahópur sem var orðinn leiður á því að það væri sjaldan spiluð danstónlist á skemmtistöðum borgarinnar þannig að við ákváðum að halda okkar eigin kvöld. Markmiðið er að hafa gaman og dansa en þurfa ekki að taka til daginn eftir. Við höfum í raun bara litið á þetta sem stórt heimilispartí, nema á skemmtistað með góðu hljóðkerfi. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem við flytjum inn erlendan tónlistarmann og við erum mjög spenntir fyrir því. Ef það tekst vel ætlum við að gera það oftar en þetta er langstærsta Kanilkvöldið til þessa.“ Miðaverð er 1.500 kr. í forsölu en 2.000 kr. við hurð.

Meira í Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.

Ath. Í blaðinu var fyrir mistök tilkynnt að kvöldið færi fram á laugardagskvöldið 14. janúar en ekki föstudagskvöldið 13., föstudag, eins og rétt er. Leiðréttist það hér með og biðjast Monitor-liðar jafnframt afsökunar á þessari rangfærslu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
Í gær, 22:30 Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Á sprellanum á bak við skilti

Kiriama fjölskyldan
10.5. Strákarnir í Kiriyama Family sendu frá sér sitt fyrsta lag fyrir rúmu ári en nú er von á þeirra fyrstu plötu. Monitor spjallaði við Bassa Ólafsson trommara um þessa fallegu fjölskyldu. Meira »

finnur.is