Afdrifarík hótun
Bandarísk kona hafði samband við flugfélag og tilkynnti að maður ætlaði að koma sprengju fyrir um borð í flugvél sem átti að fljúga frá Los Angeles til Atlanta. Nánari athugun leiddi í ljós að um gabb var að ræða. Tilgangurinn var að koma í veg fyrir að eiginmaðurinn gæti hitt hjákonuna.
Johanna Woolfolk, sem er fimmtug, hefur játað að hafa hringt í AirTran Airways í nóvember sl. og sagt að eiginmaður sinn væri með sprengju meðferðis á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles.
„Við höfðum verið að rífast og ég hringdi í flugfélagið og tilkynnti að hann væri með sprengju, til að koma í veg fyrir að hann gæti flogið til að hitta aðra konu,“ sagði Woolfolk í réttarsal.
Starfsmenn bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) stöðvuðu manninn á flugvellinum og var hann færður til yfirheyrslu, sem leiddi til þess að hann missti af fluginu.
Dómur yfir Woolfolk verður kveðinn upp 2. apríl nk. Hún á yfir höfði sér að hljóta fimm ára fangelsisdóm og 250.000 dala sekt.









