Sinfónía fyrir hljómsveit - en ekki farsíma

stækka

Reuters

Óvænt hlé varð á tónleikum Fílaharmóníusveitar New York-borgar í vikunni þegar farsími eins tónleikagestsins tók upp á því að spila lag í miðri Sinfóníu númer 9 eftir Mahler.

Hljómsveitin var í lokakafla verksins, sem er leikinn mjög lágt, þegar iPhone eins gestsins, sem sat nálægt sviðinu, hóf að leika marimba. Hljómsveitarstjóranum, Alan Gilbert, var nóg boðið. Hann stöðvaði hljómsveitina, snéri sér við og hvessti augun á áhorfandann.  

„Þetta var hæsti tónninn í salnum," sagði Gilbert í sjónvarpsviðtali. „Eitthvað varð að gera."

Símaeigandinn, karlmaður á sjötugsaldri, var greinilega ekki búinn að læra almennilega hvernig ætti að þagga niður í símanum og því héldu þessir aukatónleikar áfram í dágóða stund.  „Hunskastu út," og „köstum honum út," heyrðist þá frá áhorfendum í salnum.

Blaðið New York Times hefur í dag eftir manninum, sem ekki er nafngreindur, að fyrirtækið sem hann vinnur hjá hafi látið hann hafa símann daginn áður. Hann segist hafa verið lengi að gera sér grein fyrir því að það var síminn hans sem truflaði tónleikana. Hann hafi ekki vitað að vekjaraklukkan í símanum var stillt á hringingu. 

„Fólk getur gert sér í hugarlund hvað það er hræðilegt að vita að þetta er manni að kenna," sagði maðurinn. „Það er hræðilegt, hræðilegt. Ég vona að fólk, sem var á tónleikunum og hljóðfæraleikararnir, geti fyrirgefið mér. Ég bið alla áheyrendur afsökunar." 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is