|
Monitor
| mbl
| 13.1.2012
| 22:29
| Uppfært
14.1.2012
0:46
Vilja sjá Kate Perry með Tebow
Foreldrar Kate Perry vilja að hún byrji með NFL-stjörnunni trúuðu, Tim Tebow.
Söngkonan skildi við Russel Brand í Desember en foreldrar hennar, Mary og Keith, sem er kristinn prestur, trúa því að þessi öflugi leikstjórnandi Denver Broncos geti hjálpað henni að græða sárin.
“Katy hefur minnst á það oftar en einu sinni að henni líki við Tim,” sagði heimildarmaður við New York Daily Post. “Mamma Katy trúir því staðfastlega að besta lækningin við ástarsorg sé að verða aftur ástfangin sem fyrst. Í hennar huga er Tebow fullkominn fyrir dóttur hennar. Hann er myndarlegur, heillandi, greindur og ofar öllu, góður kristinn maður.”
Hinn 36 ára Russel sótti um skilnað 30. desember einungis 14 mánuðum eftir að þau gengu í það heilaga og hefur fólk getið sér þess til að það hafi af einhverjum hluta verið vegna þess að Russel er ekki kristinn og grínaðist í sífellu með trú fjölskyldu Perry.
Á síðasta ári sagði Katy: “Russel hefur sagt marga guðlastsbrandara í gegnum tíðina en nú hefur þeim farið fækkandi því hann veit að ég er mjög viðkvæm hvað þessi mál varðar.”
Sjálfur er Russel Buddha-trúar og hefur hann sagt að sú trú hafi hjálpað sér að komast á beinu brautina eftir kynlífsfíkn og eiturlyfjanotkun.
Hann sagði: “Ég er hálfgerður taugasjúklingur og orkumikill mjög. En eftir íhugunina fann ég fyrir einstaklega fallegum frið og ég tengdi við óeigingirni. Eigingirni mín fannst mér vera yfirborðskennd og tilgangslaus.”









