SAS-músin mætti örlögum sínum í Ósló

Mús, sem leiddi til þess að flugvél norræna flugfélagsins SAS komst ekki frá Arlanda-flugvelli í Stokkhólmi  til Chicago í vikunni, hefur nú mætt örlögum sínum í höfuðborg nágrannalandsins Noregs.

Flugvélin átti að fara með 250 farþega til Chicago á miðvikudagsmorgun. Vélin kom til Svíþjóðar frá New York um nóttina og á leiðinni sá áhöfn vélarinnar mús skjótast yfir ganginn. Ekki var hægt að halda af stað frá Arlanda á ný fyrr en músin hafði verið veidd. Nagdýr eru ekki heppilegir farþegar í flugvélum því þau geta nagað sundur leiðslur.

Músagildrum var dreift um vélina og síðan var beðið eftir því að músin gengi í gildru en án árangurs. Þá þótti ljóst að grípa yrði til þess ráðs að leggja límborða á gólf vélarinnar og fanga músina þannig. En sá böggull fylgdi skammrifi að bannað er í Svíþjóð að nota slíka borða við músaveiðar. 

Ákveðið var því að senda farþegana til Chicago með annarri vél. Flugvélinni, með músina innanborðs, var hins vegar flogið tómri til Óslóar en þar eru músaveiðar með límborðum ekki bannaðar. Í Ósló var borðunum síðan komið fyrir og í gær festist músin í einum slíkum, að því er kemur fram á vef Dagens Nyheter. 

„Við lögðum mikið af límborðum á gólf flugvélarinnar um kvöldið þannig að tryggt væri að músin kæmist ekki framhjá þeim. Morguninn eftir var músin föst á einum borðanum. Það er ekki leyfilegt að nota límborða hvar sem er í Noregi heldur. Það eru einnig takmarkanir á slíku. En þetta var sérstakt tilfelli," hefur blaðið eftir  Stein Norstein hjá flugöryggisþjónustunni Anticimex í Ósló.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is