Bond-skúrkar komu óorði á kjarnorku

Dr. No, James Bond og Honey Ryder á góðri stundu. stækka

Dr. No, James Bond og Honey Ryder á góðri stundu.

Forseti breska konunglega efnafræðifélagsins segir, að illu skúrkarnir í kvikmyndunum um njósnarann James Bond hafi komið óorði á kjarnorkuna.

Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir David Phillips, prófessor og forseta efnafræðifélagsins, að Dr. No, sem reisti sinn eigin kjarnakljúf, hafi orðið til þess að kjarnorka er litin hornauga. Segist Phillips vilja sjá endurreisn kjarnorkunnar.

Kvikmyndin Dr. No, sem frumsýnd var fyrir 50 árum, var sú fyrsta sem gerð var eftir bókum Ians Flemings um James Bond. Phillips segir, að vinsældir myndarinnar hafi komið þeirri tilfinningu inn hjá almenningi, að kjarnorka væri hættuleg, og auðkýfingar, haldnir mikilmennskubrjálæði og löngun í heimsyfirráð, gætu beitt henni til að ná markmiðum sínum fram.

Fleiri skúrkar í James Bond-myndum hafa reynt að komast yfir kjarnorku. 

Vefur BBC

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is