Pandabirnir fá höfðinglegar móttökur
Tveir pandabirnir, sem flogið var með frá Kína til Frakklands í dag, fengu höfðinglegar móttökur við komuna til Parísar.
Sendiherra Kína í París, franskur þingmaður og starfsmenn dýragarðsins í Loire þar sem pöndurnar munu dvelja, tóku á móti dýrunum á Charles de Gaulle-flugvelli. Boeing 777-flugvélin, sem flutti birnina til Frakklands, var sérstaklega skreytt með pöndumyndum.
„Þau nutu ferðarinnar og átu mikið. Þau eru byrjuð að læra frönsku og ég er viss um að þau munu læra miklu meira," sagði Kong Quan, sendiherra Kína, í gamansömum tón. Hann bætti við að birnirnir væru tákn um vináttu Frakka og Kínverja en Kínverjar hafa stundum lánað öðrum ríkjum pandabirni til að greiða fyrir samskiptum við ríkin.
Gengið var frá bjarnaláninu eftir margra ára viðræður háttsettra embættismanna landanna tveggja. Samskipti Frakklands og Kína hafa verið nokkuð stirð á síðustu árum af ýmsum ástæðum. Meðal annars tóku Kínverjar það óstinnt upp þegar Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, var gerður að heiðursborgara Frakklands.
Tilkynna átti samkomulagið á leiðtogafundi G20-ríkjanna í Cannes í nóvember en því varð að fresta vegna þess að umræður um skuldakreppuna á evrusvæðinu tóku svo langan tíma.
Dýrin eru nefnd Huan Huan og Yuan Zi. Eru þetta fyrstu pandabirnirnir, sem sendir hafa verið til Frakklands frá árinu 1973. Þá gáfu kínversk stjórnvöld Georges Pompidou, þáverandi Frakklandsforseta, tvær pöndur. Önnur drapst fljótlega en hin, Yan Yan, lifði til ársins 2000.
Gert er ráð fyrir að nýju birnirnir dvelji í Beauval-dýragarðinum næsta áratuginn. Vonast er til að þeir eignist afkvæmi á meðan.









