|
Monitor
| Cover Media
| 16.1.2012
| 22:00
Á ekki heima í Hollywood
Leikkonan Viola Davis segist hafa upplifað sig sem hálfgerðan utangarðsmann á glæsilegri Golden Globe-hátíðinni sem fram fór í gær.
Leikkonan blandaði geði við þær Meryl Streep, Charlize Theron og Michelle Williams í fyrirteiti en þær voru allar tilnefndar í sama flokki og hún. Viola segist hafa kunnað ágætlega við sig í fyrirteitinu en segir þó að almennt finnist sér að hún eigi ekki beint heima á Hollywood-stórviðburðum.
„Ég nýt þess klárlega en finnst ég samt ennþá hálfgerður utangarðsmaður. Það er samt æðislegt að vera hluti af þessu,“ segir hún í samtali við New York Post.
Viola Davis sló í gegn í myndinni The Help og var fyrir vikið tilnefnd sem besta leikkonan í aðalhlutverki. Að lokum var það þó hin sívinsæla Meryl Streep sem hreppti verðlaunin fyrir túlkun sína á járnfrúnni Margaret Thatcher.









