Blessuð gæludýrin

stækka

Reuters

Hundar, kettir, kanínur og jafnvel skjaldbökur, fjölmenntu í kirkjur á Spáni í dag til þess að fá blessun á degi heilags Antons, verndara dýra. Mörg dýranna voru klædd í sitt fínasta púss í tilefni dagsins.

Eigendur dýra biðu í biðröð við kirkju heilags Antons í miðborg Madrídar og biðu þess að dýr þeirra yrðu ausin vígðu vatni. Margir Spánverjar trúa því að með þessu eigi dýr þeirra langt og gott líf framundan.

Carlos Romero er einn þeirra sem beið í biðröðinni með fimm ára gamla skjaldböku sem nefnist Paula. Romero missti aðra skjaldböku sem hann átti fyrir átta mánuðum síðan. Hann segist vonast til þess að með því að fá blessun muni Paula lifa lengi og veita honum félagsskap árum saman. Að sjálfsögðu hafi hann klætt Paulu í sín fínustu klæði, gula og rauða peysu en litirnir í spænska fánanum eru einmitt gulur og rauður. Á peysunni stóð heimsmeistarar og vísar það til heimsmeistaratitils Spánverja í knattspyrnu árið 2010. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is