|
Monitor
| Cover Media
| 17.1.2012
| 23:48
Tyra Banks fann ástina á Balí
Tyra Banks virðist hafa fundið ástina á nýjan leik þrátt fyrir að stutt síðan hún hætti með kærasta sínum, John Utendahl en þau höfðu verið saman í þrjú ár.
People magazine segir frá því að America's Next Top Model höfundurinn hafi fundið ástina á nýjan leik á Balí.
"Þetta er langlínuneisti," sagði heimildarmaður um nýju ástina í lífi Banks. "En þetta er fúlasta alvara."
Fyrir jólin flaug Tyra til Kína til að taka upp þátt í næstu þáttaröð af America's Next Top Model. Á ferð sinni um Asíu hitti hún nýju ástina og um leið og hún lenti í New York fóru hún beinustu leið til Balí til að eyða hátíðinni með draumaprinsinum.
Hennar fyrrverandi virðist líka vera fljótur að koma sér af markaðnum en hann sást með rússneskri fyrirsætu á strætum New York-borgar skömmu eftir að sambandsslit hans og Tyru voru gerð opinber.









