Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| Morgunblaðið
| 18.1.2012
| 9:00
Japan: Bossaskanni gegn bílþjófum?
Japanskir vísindamenn hafa þróað nýja tækni til að bera kennsl á fólk og koma í veg fyrir bílstuldi – búnað sem ber kennsl á sitjanda bíleigandans.
Vísindamennirnir segjast hafa þróað lak sem hægt sé að setja á bílstjórasætið. Lakið sé með 360 skynjara sem mæli stærð sitjandans, þrýstingsmynstur og fleiri þætti sem gera búnaðinum kleift að bera kennsl á eigandann.
Búnaðurinn hefur náð 98% nákvæmni en vísindamennirnir eiga enn eftir að sníða nokkra vankanta af honum áður en hægt verður að setja hann á markað.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









