Vilja keppa í rúningi á Ólympíuleikum
Bændasamtökin á Nýja-Sjálandi vilja að keppt verði í rúningi sauðfjár á Ólympíuleikunum. Þar í landi eru tvöfalt fleiri kindur en menn og segja samtökin þá sem rýja kindur mikla íþróttamenn á sínu sviði. Þeir þurfi að vera í mjög góðu líkamlegu formi. Talsmaður samtakanna segir löngu tímabært að gera þessari íþróttagrein hærra undir höfði. Ein leiðin væri að gera rúning að keppnisgrein á sjálfum Ólympíuleikunum.
Þegar keppa rúningsmenn á ýmsum mótum, m.a. heimsmeistaramóti. Þar er keppt bæði í kvenna- og karlaflokki. Slíkar keppnir eru vinsælar. Núverandi heimsmeistari í karlaflokki er Skotinn Ivan Scott sem rúði 749 kindur á átta klukkustundum. Heimsmethafinn í kvennaflokki, Kerri-Jo Te Huia, bætti heimsmetið um 37 kindur er hún rúði 507 kindur á átta klukkustundum.
Hér á landi er einnig keppt í rúningi, m.a. fór slík keppni fram að Hrafnagili sl. sumar.









