Ólögleg rasskinn af Saddam

Barn á hjóli ekur fram hjá höfði styttu af Saddam Hussein.

Barn á hjóli ekur fram hjá höfði styttu af Saddam Hussein. AP

Lögregla í Bretlandi hefur handtekið 66 ára gamlan karlmann, sem grunaður er um að hafa flutt hluta af bronsstyttu af Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraka, ólöglega frá Írak. Um er að ræða aðra rasskinn styttunnar.

Maðurinn, Nigel „Spur" Ely, var í sérsveit breska hersins árið 2003 eftir að innrásin var gerð í Írak og sá bandaríska landgönguliða fella styttuna eftir að Saddam flúði frá höfuðborginni Bagdad. Þeir brutu síðan styttuna í sundur.

Ely flutti styttubrotið með sér til Bretlands og setti það á uppboð á síðsta ári. Enginn vildi hins vegar kaupa styttubrotið fyrir lágmarksverð, 250 þúsund pund.

Ely sagðist undrandi á því að hafa verið handtekinn. „Þetta er eins og að eiga brot úr Berlínarmúrnum. Þetta er hluti af sögunni en ekki menningarverðmæti," sagði hann.

Hann bætti við að bandarískir landgönguliðar hefðu gefið honum styttubrotið eftir að Bandaríkjaher náði Bagdad á sitt vald. „Hvernig er hægt að skilgreina þetta sem menningarverðmæti i ljósi þess að mesti harðstjóri frá því Atli Húnakonungur var uppi kom styttunni fyrir?"

Samkvæmt lögum, sem sett voru í Bretlandi árið 2003, er bannað að flytja til landsins írösk menningarverðmæti, sem hafa verið fjarlægð og flutt frá Írak með ólöglegum hætti.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
cript>

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is