Eltihrellir Halle Berry dæmdur

Halle Berry mun ekki faðma Richard Franco í bráð. stækka

Halle Berry mun ekki faðma Richard Franco í bráð. mbl.is/Cover Media

Eltihrellir Halle Berry hefur verið dæmdur í 386 daga fangelsi.

Richard Franco var handtekinn í júlí síðastliðnum í kjölfar þess að hann var gómaður af öryggisvörðum leikkonunnar inni á einkalóð hennar í Hollywood. Hann hefur nú náð samningum við saksóknara með því að játa á sig glæpinn gegn því að ákæra um innbrot sé felld niður.

Franco hefur nú þegar setið inni í 193 daga svo hann þarf eingöngu að sitja á bak við lás og slá í 193 daga til viðbótar.

Samkvæmt heimildum slúðursíðunnar TMZ.com verður Franco á skilorði í 5 ár eftir að hann hefur tekið út fangavistina og þá þarf hann að sæta geðræna meðferð í 1 ár.

Dómari málsins framlengdi einnig nálgunarbannið á Franco sem átti að vera til þriggja ára og nú þarf Franco að halda sig í að minnsta kosti 180 metrum frá leikkonunni og þriggja ára dóttur hennar, Nahla, næstu 10 árin.

Franco var gómaður þrisvar sinnum á þremur dögum á heimili Berry og í eitt skiptanna hafði hann brotist inn í gestahús leikkonunnar.

Einnig var hann uppvís að því að njósna um Berry í gegnum eldhúshurðina en það varð til þess að hún hringdi á lögregluna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
cript>

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
Í gær, 22:30 Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Á sprellanum á bak við skilti

Kiriama fjölskyldan
10.5. Strákarnir í Kiriyama Family sendu frá sér sitt fyrsta lag fyrir rúmu ári en nú er von á þeirra fyrstu plötu. Monitor spjallaði við Bassa Ólafsson trommara um þessa fallegu fjölskyldu. Meira »

finnur.is