Gingrich: Alveg búinn að gleyma frönskunni

Newt Gingrich stækka

Newt Gingrich Reuters

Newt Gingrich, sem stefnir að því að verða frambjóðandi repúblikana í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum, segist alveg vera búinn að gleyma frönskunni.

Hann viðurkenndi við blaðamann í dag að hann hefði kunnað frönsku í bernsku en þeir tímar væru að baki. Gingrich lét þessi ummæli falla er franskur blaðamaður spurði hann í dag um Afganistan en bað um leið afsökunar á hversu frönskuskotin enskan væri. „Þekkir þú John Kerry?“ spurði Gingrich blaðamanninn og vísaði til þess að Kerry, sem tapaði fyrir George Bush í forsetakosningunum árið 2004, talar frönsku og fékk heldur betur að heyra það í kosningabaráttunni að hann væri hliðhollur Frökkum. Á þessum tíma áttu Frakkar ekki upp á pallborðið hjá Bandaríkjamönnum vegna andstöðu þeirra við innrásina í Írak árið 2003.

Blaðamaðurinn gafst ekki upp og spurði Gingrich, sem bjó í nokkur ár í Orléans í Frakklandi í æsku þegar faðir hans gegndi herþjónustu þar, hvort hann talaði frönsku. „Nei ég talaði frönsku einu sinni fyrir löngu,“ svaraði Gingrich.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
cript>

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is