Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 20.1.2012
| 18:42
Gleymdi skærum í kviðarholi sjúklings
Ótrúleg sjón blasti við læknum á sjúkrahúsi á Las Palmas á Kanaríeyjum þegar þeir skoðuðu röntgenmynd af sjúklingi sem kvartaði undan magaverk. Hann var með tvenn skæri i kviðarholinu sem læknar höfðu gleymt í honum.
Sjúklingurinn, sem er 37 ára gamall maður af kínverskum ættum, hafði farið í aðgerð á einkasjúkrahúsi á Kanarí. Hann leitaði til heilsugæslustöðvar á Las Palmas 10 dögum síðar vegna mikilla verkja í kviðarholi. Við rannsókn kom í ljós að hann var með tvenn 15 cm löng skæri, eða tangir í kviðarholinu. Þeim hafði læknir sem skar hann upp gleymt þegar hann saumaði hann saman.
Það er ekki óþekkt að læknar gleymi aðskotahlutum í kviðarholi sjúklings.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









