Þvagtölvuleikur tryllir Japana
Margt má sér til gamans gera á náðhúsum, þökk sé nýjustu uppfinningu japanska tölvurisans Sega. mbl.is
Bandaríski tölvuleikjaframleiðandinn Sega hefur nú sett á markað tölvuleik, sem eingöngu er hægt að spila í náðhúsum. Um er að ræða leikinn „Toylet“, en þar er þvagbunan í hlutverki stýripinna.
Þeir sem leika leikinn reyna að gera bunu sína sem kraftmesta og geta þannig leikið ýmsa leiki. Tölvuleikurinn hefur þegar verið settur upp á salernum á um 100 skemmtistöðum og börum víða um Japan og hefur mælst vel fyrir.
Enn sem komið er virðist tölvuleikurinn eingöngu vera gerður fyrir þá sem kasta af sér vatni standandi.
Talsmaður Sega segir að leikurinn auki á gleði manna og að hann sjái til þess að þeir sem hann leika skorti ekki umræðuefni þegar þeir snúa aftur að barborðinu að leik loknum.
Einnig á hann að minnka þvaglát utan salernisskálar og hafa eigendur skemmtistaða staðfest að talsvert hreinlegra sé nú um að litast á salernum eftir að þeir tóku leikinn í gagnið.









