4 dauðsföll á 24 klukkustundum

Fjórar manneskjur biðu bana í neðanjarðarlestakerfi New York-borgar á laugardaginn. stækka

Fjórar manneskjur biðu bana í neðanjarðarlestakerfi New York-borgar á laugardaginn. Reuter

Fjórar manneskjur létust í neðanjarðarlestarkerfi New York-borgar á aðeins 24 klukkustundum síðastliðna helgi. Allar biðu þær bana á laugardaginn en lögregla borgarinnar telur dauðsföllin þó ekki tengd.

Fyrsta dauðsfallið varð um kl. 2 á laugardagsmorgun, að staðartíma, þegar maður á sjötugsaldri beið bana eftir að hafa fallið niður stiga á lestarstöð í Elmhurst í Queens.

Um sex klukkustundum seinna varð maður á þrítugsaldri fyrir lest þegar hann stóð milli lestarteinanna milli þriðju breiðgötu og Union Square á Manhattan.

Þriðja dauðsfallið var tilkynnt um eftirmiðdaginn þegar lestarstarfsmaður sá lík á lestarteinum við Nostrand Avenue neðanjarðarlestarstöðina í Brooklyn.

Á laugardagskvöld varð síðan vart við fjórða dauðsfallið þegar mannshöfuð fannst milli lestarstöðvarpalls og lestarvagns við lestarstöðina við sjöttu breiðgötu á Manhattan.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is