|
Monitor
| Cover Media
| 23.1.2012
| 22:00
Destiny's Child sameinaðar á ný
Fregnir herma að stúlknasveitin sígilda Destiny's Child hafi komið saman á ný og sungið fyrir nýfædda dóttur Beyoncé Knowles á dögunum.
Stúlknaþríeykið hittist nýverið þegar þær Kelly Rowland og Michelle Williams heimsóttu Beyoncé til að berja dótturina Blue Ivy augum. Að sögn stóðust þær ekki mátið og ákváðu að syngja barnið í svefn.
„Þær eru ennþá verulega nánar og stelpurnar gátu ekki beðið eftir að sjá Blue,“ sagði heimildarmaður í samtali við breska dagblaðið The Sun. „Þær byrjuðu að söngla saman og þetta var alveg eins og hér áður fyrr. Það var eins og hljómsveitin væri byrjuð aftur.“
Hljómsveitin, sem hætti árið 2005, naut gífurlegra vinsælda í kringum og upp úr síðustu aldamótum og lagði grunninn að hinum gífurlega farsæla ferli Beyoncé. Aðdáendur Destiny's Child ættu nú að vona það besta um að endurfundirnir og söngstundin verði einfaldlega til þess að hljómsveitin snúi aftur með stæl áður en langt um líður.









