Ráðherra flæktur í skóreimahneyksli
Indverskur ráðherra hefur heitið því að ganga héðan í frá aðeins í reimalausum skóm eftir að myndbandsupptaka náðist af því þegar hann notaði ungan mann til þess að reima skó sína við opinbera athöfn.
Gauri Shankar Bisen, ráðherra í ríkisstjórn Madhya Pradesh-ríkis, hefur síðan beðist afsökunar og viðurkennt að það hafi verið mistök að láta ungan námsmann reima fyrir sig á meðan hann beið eftir að opinber viðburður hæfist.
Bisen segir að námsmaðurinn sé 18 ára gamall en síðar við sama tækifæri sást hann reima skóna aftur fyrir ráðherrann á meðan hann ræddi við önnur fyrirmenni.
„Ég viðurkenni að þetta voru mín mistök og mér þykir fyrir því. Ég heiti því að héðan í frá mun ég ekki ganga í skóm með reimum. Ég hef sérstaklega keypt sex skópör frá Pune sem eru reimalausir,“ segir Bisen sem heldur því fram að læknar hafi ráðlagt honum að beygja sig ekki fram fyrir sig eftir aðgerð sem hann gekkst undir nýverið.
Hér er hægt er að sjá myndband af reimahneykslinu.









