Átti ekki von á sexburum

Nýfædd börn. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. stækka

Nýfædd börn. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Reuters

Afgönsk kona hefur eignast sex börn á sjúkrahúsi í borginni Mazar-e-Sharif. Þetta kom konunni í opna skjöldu því hún taldi sig aðeins eiga von á einu barni. Þá segist hún ekki hafa gengist undir frjósemisaðgerð.

Að sögn lækna var konan, sem er 24 ára gömul, innrituð á sjúkrahúsið í gær. Sama dag komu börnin í heiminn; þrír drengir og þrjár stúlkur. Þetta eru fyrstu börnin sem konan eignast, að því er segir í frétt á vef breska ríkisútvarpsins.

Þá segja læknar að það sé afar sjaldgæft að fólk eignist sex börn án þess að hafa gengist undir frjósemisaðgerð.

Læknarnir segja að börnunum líði vel þrátt fyrir að þau hafi öll verið lítil og létt. Það minnsta vó aðeins 700 grömm. Þá líður móðurinni vel en hún er hins vegar afar þreytt eftir átökin.

Breska ríkisútvarpið bendir á að tíðni barna- og mæðradauða í Afganistan sé afar há.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is