|
Monitor
| Cover Media
| 24.1.2012
| 21:32
| Uppfært
25.1.2012
14:17
Katy Perry í ástarsorg
Katy Perry er sögð biðja æðri mátt um kraftaverk fyrir hjónaband sitt og þá er haft eftir heimildarmönnum að hún sé búin að vera uppnámi síðan hún og Russel Brand bundu enda á samband sitt. Brand sótti um skilnað 14 mánuðum eftir að þau gengu í það heilaga og uppi hafa verið getgátur um það að Perry hafi ekki verið tilbúin í það.
Sökum þess að hún vill ennþá vera í hjónabandi hefur hún leitað á náðir kristinnar trúar í leit að stuðningi. "Hún hefur beðið um kraftaverk og það sýnir að henni er alveg sama um peningana," sagði heimildarmaður við breska tímaritið Grazia.
Russel hefur neitað að tala við Katy eftir skilnaðinn. Margir héldu að hann væri á leið á hennar fund þegar hann flaug til Los Angeles fyrr í þessum mánuði en það var ljóst að svo var ekki því Katy flaug frá Ameríku skömmu áður.
"Hún reynir eftir fremsta megni að átta sig á því hvað gerðist og þó hún viti að þetta sé búið spil þá er hluti af henni sem getur ekki samþykkt þetta allt saman fyrr en hún hefur hitt Russel og talað við hann augnliti til augnlitis. Hún skilur ekki hvers vegna hann vill ekki tala við hana og það gerir hlutina 100 sinnum erfiðari fyrir hana. Katy reyndi meira að segja að tala við móður Russel, Barbara, og félaga hans en þau segja henni að hann muni setja sig í samband við hana þegar hann er tilbúinn til þess."
Hin 27 ára Katy hefur að undanförnu samið lög um ástarsorgina en heyrst hefur að Russel muni svipta hulunni af aðskilnaðinum í nýrri ævisögu sem er í burðarliðnum.
Nánir vinir þessa fyrrverandi pars eru sammála um að Katy og Russel eigi að leita sér aðstoðar sérfræðings við að ná saman á ný og verða vinir aftur, jafnvel þó þau geri ekki endilega við hjónabandið sjálft.
"Katy vill að Russell hitti meðferðarsérfræðing og þegar öllu er á botnin hvolft er ljóst að hann þarf að vera á sama máli þó það væri ekki nema bara til að halda sínum eigin ferli í réttu horfi," sagði innanbúðarmaður. "Það gengur ekki að hafa tvær stjörnur upp á móti hvorri annarri því að bestu vinir þeirra vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga."









