Lík í loftræstikerfinu

Lyon stækka

Lyon

Franskir slökkviliðsmenn reyna nú að ná illa förnu líki út úr loftræstikerfi banka í Lyon en ekki er vitað hvað varð manninum að aldurtila. Eins er ekki vitað hvað í ósköpunum hann var að gera í loftræstikerfi Credit Foncier bankans. Líklegast þykir að hann hafi ætlað að ræna bankann eða þá að um heimilislausan einstakling hafi verið að ræða sem leitaði í hlýjuna.

Starfsmenn Credit Foncier hafa allt frá því í september kvartað undan vondri lykt í útibúi bankans í Lyon og í gær þegar starfsmaður greip til sinna ráða og leit inn í loftræstikerfið sá hann líkið.

Hinn látni var fastur í beygju í loftræstistokk og vinna slökkviliðsmenn og sérfræðingar við að víkka opið, sem er einungis 50 cm, svo auðveldara sé að komast að líkinu og koma því í heilu lagi út úr loftræstikerfinu. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is