Viltu losa þig við gamlar minningar?

Búðarverð:6.400 pund Sambandsslitaverð: 3 þúsund pund. stækka

Búðarverð:6.400 pund Sambandsslitaverð: 3 þúsund pund. Af vefnum neverlikeditanyway.com/

Nýr vefur hefur verið settur í loftið þar sem fólk getur selt muni sem það hefur eignast í samböndum sem ekki entust.

Annabel Acton, 28 ára, frá New York, stofnaði vefinn neverlikeditanyway.com eftir að samband hennar og unnustans lauk einungis nokkrum dögum fyrir jól, samkvæmt frétt Daily Telegraph.

Acton átti meðal annars tvo farmiða til Lundúna, auk listmuna og skartgripa sem hún hafði engan áhuga á að eiga lengur. Hún ákvað því að selja þetta allt á Netinu. Fannst henni þetta betri leið heldur en að leita á náðir íssins og snýtuklútanna til að jafna sig á sambandsslitunum. 

Vefurinn hefur vakið töluverða athygli og er hægt að kaupa þar brúðarkjóla, trúlofunarhringa og giftingarhringa fyrir lítið fé.

Seljendur birta mynd af því sem er til sölu með verðmiða eins og eðlilegt er að greiða fyrir hlutinn út úr búð en síðan er útsöluverðið og oft texti sem fylgir með um sambandsslitin.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is