Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 25.1.2012
| 8:07
| Uppfært
10:58
Með þúsundir kvennærhalda
Lögregla í Taílandi segist hafa handtekið þjóf, sem var með yfir þúsund kvennærbuxur í skottinu á bíl sínum.
Að auki fundust yfir 10 þúsund pör af kvennærbuxum í húsi mannsins, sem var handtekinn ásamt öðrum manni þegar þeir voru að brjótast inn í hús í Bangkok.
Maðurinn er 48 ára að aldri. Lögregla segir hann hafa viðurkennt að hafa stolið og safnað kvennærfötum frá því hann var 18 ára.
Hann verður ákærður fyrir innbrot og þjófnað, þó ekki á nærhöldunum því ekki er vitað um eigendur þeirra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









