Missti fótinn í tölvunni - ekki vegna sjúkdóms
Í nýrri auglýsingaherferð New York-borgar gegn áunninni sykursýki er m.a. notuð mynd af einfættum og of feitum karlmanni. Í ljós hefur hins vegar komið að maðurinn missti fótinn í tölvu auglýsingastofu en ekki af völdum sykursýki.
Blaðið New York Times upplýsti í dag, að myndinni hefði verið breytt til að láta líta út fyrir að maðurinn væri einfættur. Ljósmyndarinn Morten Smidt segist hafa tekið myndina árið 2008 og þá hafi maðurinn verið með báða fætur jafnlanga. Myndin var síðan seld til myndabankans Image Source sem seldi hana áfram til auglýsingastofu í Brasilíu.
„Þeir breyttu myndinni,“ segir Smidt. Hann segist ekki hafa vitað hvað maðurinn hét.
Heilbrigðisráð New York segist hafa notað auglýsingastofuna DCS, sem er með höfuðstöðvar í Brasilíu.
Á auglýsingaspjaldinu, sem hefur verið hengt upp í neðanjarðarlestarstöðvum, er varað við því, að of stórir matarskammtar geti leitt til áunninnar sykursýki sem aftur geti valdið því að blóðflæði til útlima minnkar og valdið ígerð og sárum sem gróa seint og illa.
„Matarskammtar hafa stækkað,“ stendur á spjaldinu. „Sykursýki 2 er einnig orðin algengari en hún getur valdið því að fjarlægja þurfi útlimi.“









