|
Monitor
| Cover Media
| 25.1.2012
| 22:00
Pitt: Maríjúana gerði mér illt
Brad Pitt hefur greint frá því að hann reykti alltof mikið af dópi í lok tíunda áratugar síðustu aldar.
Þessi 48 ára gamla stjarna opnaði sig fyrir blaðamanni Hollywood Reporter varðandi eiturlyfjaneyslu sína og viðurkenndi að maríjuana hefði haft neikvæð áhrif á líf hans. Leikarinn var nýverið tilnefndur til Óskarsverðlauna sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir myndina Moneyball en segir þó að hann hafi gengið í gegnum myrka daga þegar hann skaust upp á stjörnuhimininn fyrir tveimur áratugum.
„Ég faldi mig fyrir glanslífi stjarnanna,“ rifjar hann upp. „Ég reykti alltof mikið af dópi. Ég sat á sófanum og var í raun bara að breytast í einhvern aumingja. Ég fór virkilega í taugarnar á mér sjálfum,“ bætir hann við.
Pitt segist að lokum hafa getað slitið sig frá þessu þegar hann fattaði að hann væri betri en þetta. „Ég glímdi við þunglyndi þar til fyrir áratug. Það er samt hluti af því að fatta sjálfan sig. Ég lít á þetta sem frábæra menntun. Fagið sem ég tók mastersgráðu í var þunglyndi.“
Hann segir að vendipunkturinn hafi verið þegar hann fór til Júgóslavíu og Marokkós. „Þar sá ég meiri fátækt en ég hafði nokkurn tímann kynnst. Ég hætti bara. Hætti í grasinu og ákvað að rífa mig upp úr sófanum,“ útskýrir stjarnan.









