Notaði ræðu úr kvikmynd
Anthony Albanese, samgönguráðherra Ástralíu, hefur verið sakaður um að nota kafla úr ræðu, sem ímyndaður Bandaríkjaforseti flutti í Hollywoodmynd árið 1995.
Albanese flutti ræðu í blaðamannaklúbbnum í Canberra og notaði tækifærið til að ráðast á Tony Abbott, leiðtoga stjórnarandstöðunnar.
„Við þurfum að glíma við alvarleg vandamál í Ástralíu og við þurfum á alvöru fólki að halda til að leysa þau. Því miður hefur Tony Abbott engan áhuga á að leysa nein vandamál,“ sagði Albanese að sögn breska blaðsins Daily Telegraph.
„Hann hefur aðeins áhuga á tvennu: Að hræða Ástrala og segja þeim hverjum það sé að kenna.“
Brian Loughnane, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins í Ástralíu fannst hann kannast eitthvað við ræðuna og fann hana í kvikmyndinni The American President. Í kjölfar bjó Loughnane til myndskeið sem hann kallaði: Albo, þú ert enginn Michael Douglas.
Í myndinni leikur Michael Douglas Bandaríkjaforsetann Andrew Shepherd, sem gagnrýnir andstæðing sinn með þessum orðum:
„Við glímum við alvarleg vandamál og við þurfum á alvöru fólki að halda til að leysa þau. Og það er sama hvaða vandamál þú glímir við, vinur, Bob Rumson hefur engan áhuga á að leysa þau. Hann hefur aðeins áhuga á tvennu, að hræða þig og segja þér síðan hverjum það sé að kenna.“
Handritshöfundur myndarinnar er Aaron Sorkin, sem síðar hleypti af stokkunum sjónvarpsþáttaröðinni Vesturálmunni. Hann fékk einnig Óskarsverðlaun fyrir handritið að myndinni The Social Network á síðasta ári.









