Ömurlegar aðstæður vinnufólks

Rotið epli? stækka

Rotið epli? Reuters

Starfsfólkið vinnur langa vinnudaga, stundum alla daga vikunnar, og býr við þröngar aðstæður. Sumir segja að þeir séu tilneyddir til að standa lengi, þar til fætur þeirra bólgna svo mikið að þeir geta ekki gengið.

Svona hljóma frásagnir starfsmanna sem unnið hafa í verksmiðjum þar sem vörur Apple-fyrirtækisins eru framleiddar en fjallað var um málið í The New York Times í gær.

Þar kemur m.a. fram að fyrir tveimur árum slösuðust 137 starfsmenn í slíkri verksmiðju í austurhluta Kína, eftir að þeim var skipað að nota eitruð efni til þess að hreinsa skjái iPhone-síma. Einnig að á sjö mánuðum á síðasta ári urðu tvær sprengingar, í verksmiðjum þar sem iPad er framleiddur, fjórir létust og 77 slösuðust.

Fyrrverandi yfirmenn hjá Apple segja vilja til þess hjá fyrirtækinu að bæta  ástandið í þeim verksmiðjum sem framleiða vörur fyrir það. Hins vegar gjaldi stjórnendur þess varhug við því að grípa til aðgerða sem gætu dregið úr framleiðslu vara á borð við iPhone, iPad og iPod.

Hagnaður Apple á fjórða ársfjórðungi síðasta árs sló öll met og var einn stærsti ársfjórðungur nokkurs fyrirtækis í sögunni. Og til þess að skilja hvað er í húfi, þá hafa þeir sem þekkja til sagt að fyrirtækið hefði getað skilað jafnvel enn meiri hagnaði, væri framleiðslugeta verksmiðjanna meiri.

En þetta á ekki bara við um Apple, heldur fjölmörg önnur hátæknifyrirtæki, segir í greininni.

Frétt New York Times

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is