|
Monitor
| Cover Media
| 26.1.2012
| 21:00
Slysið breytti lífi Jasons Derulos
Jason Derulo segir að slys þar sem hann brákaði hryggjarliði í hálsi hafi opnað augu hans fyrir forréttindunum sem hann nýtur.
Poppstjarnan Jason Derulo slasaðist á æfingu fyrir tónleikaferðalag sitt, Future History, sem var í kjölfarið frestað. Hann slapp naumlega við að lamast og þurfti upp frá þessu að ganga um með þungan hálskraga. Derulo segir að upplifunin hafi fengið hann til að endurmeta lífið og það sem skiptir hann í raun og veru máli.
„Ég tek einn dag í einu,“ sagði hann í samtali við People. „Þetta hefur virkilega opnað augu mín. Þetta gaf mér tækifæri til að líta á allt og átta mig á því hvað ég nýt mikilla forréttinda. Ég hef hlotið algjöra blessun.“
Jason Derulo og Jordin Sparks hafa verið bendluð hvort við annað í þónokkurn tíma og í viðtalinu staðfestir hann að þau séu par. Hann segir að stuðningur hennar á batatímanum hafi reynst ómetanlegur.
„Við erum saman,“ segir hann. „Hún býr í Phoenix en hefur heimsótt mig í Miami til að hjúkra mér, færa mér morgunmat í rúmið og fara í göngutúra með mér. Við höfum orðið nánari vegna slyssins. Það er frábært að hafa einhvern til að tala við og hún er yndisleg manneskja.“
Slysið var fyrsta beinbrot hins 21 árs Derulos. Hann segist hafa nýtt batatímann til að spila á píanóið og semja nýtt efni og segist vera tilbúinn með efni í nýja plötu.









