Borðar bara kjúklinganagga

Kjúklinganaggar. stækka

Kjúklinganaggar.

Læknar hafa varað hina 17 gömlu Stacey Irvine við að mataræði hennar muni ganga af henni dauðri en hún hefur borðað fátt annað en kjúklinganagga síðastliðin 15 ár. Stacey var nýlega lögð inn á spítala vegna einkenna sem rekja má til fábreyttra máltíða hennar.

Stacey hefur verið hálfpartinn háð kjúklinganöggum frá því að móðir hennar keypti þá fyrst handa henni á McDonald's þegar hún var tveggja ára gömul. Hún borðar hvorki ávexti né grænmeti og eyðir frístundum sínum á McDonald's, þar sem hún pantar 20 nagga handa sér og kærasta sínum.

En stúlkan unga, sem býr í Birmingham á Englandi, stríðir við öndunarerfiðleika, blóðleysi og var nýlega lögð inn á spítala vegna bólginna æða í tungu. „Ég er að byrja að átta mig á því að þetta er ekki hollt fyrir mig,“ sagði Irvine í samtali við Daily Mail.

Á vefsvæði Huffington Post má finna áhugaverðan lista yfir þær fæðutegundir sem fólk hefur einskorðað sig við, ýmist vegna þess að það er háð þeim, vill grennast eða bara til að sjá hvað gerist.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is