Tók bílinn eftir að hafa misst af strætó

Drengurinn ók Renault Megane bíl föður síns.

Drengurinn ók Renault Megane bíl föður síns. mbl.is

Tíu ára franskur drengur dó ekki ráðalaus eftir að hafa misst af strætó þegar hann var á leið í skólann. Hann einfaldlega tók bíl föður síns og ók af stað.

Drengurinn bauð 9 ára skólabróður sínum að sitja í hjá sér. Hann ók síðan um tvo kílómetra á Renault-bílnum áður en hann keyrði á.

„Ég var með öryggisbelti,“ sagði drengurinn þegar lögreglan mætti á staðinn. Hann og skólabróðir hans sluppu ómeiddir úr óhappinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is