Verður ekki södd af salati

Katherine Heigl.

Katherine Heigl. AP

Katherine Heigl er áhyggjulaus þegar kemur að mat og hún gerir ekkert skemmtilegra en fara út að borða. Leikkonan kveðst vera löt að elda og borða oftar en ekki á veitingastöðum. Hún fær sér það sem hana langar mest í hverju sinni og telur aldrei hitaeiningarnar.

Í viðtali við New York Post segist Heigl stunda líkamsrækt til að halda sér í góðu formi en njóta þess að gera vel við sig í mat, sérstaklega á milli kvikmyndaverkefna. „Ég elska að fara út að borða, sérstaklega í New York því veitingastaðirnir þar eru þeir albestu,“ segir leikkonan. „Ég get ekki lifað af því að borða bara salat, ég þarf meiri mat. Aðalatriðið er að passa upp á skammtastærðirnar og borða ekki of mikið.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Viktoría fer heim af spítalanum

Daníel Westling og Viktoría krónprinsessa Svía.
13:17 Viktoría, krónprinsessa Svía, eignaðist dóttur í morgun en er nú komin heim til sín. Hér sést hún yfirgefa spítalann.   Meira »

Langar að leikstýra Brad Pitt

Angelina Jolie.
10:55 Angelina Jolie gælir við hugmyndina að vinna nánar með barnsföður sínum.  Meira »

Undirbýr mynd um sjálfan sig

Elton John.
13:11 Justin Timberlake fer með hlutverk Eltons Johns en leit stendur yfir að rétta leikstjóranum  Meira »

Óttast að Rihanna og Brown taki aftur saman

Rihanna.
09:46 Chris Brown og Rihanna eru ískyggilega nálægt því að taka aftur saman, að sögn slúðursíðunnar tmz.com en vinir söngkonunnar reyni hvað þeir geti að halda þeim hvort frá öðru. Meira »

finnur.is